Bjössabragur
(Gústi guðsmaður).
Texti Þórir Níelsson
Á Finnastöðum fæddist
hann
Þá eignuðumst við
Bjössa þann
Sem boðið hefur vinum
veislu til
Hann tæklað hefur
tugi þrjá
Og tekst að vera
ofaná
Við tækifærið gerum
því nú skil
Í barnæsku þá braut
hann lær
Á brölti upp á stæður
þær
Er geymdu allan fína
áburðinn
Já svona fer með
frumburðinn
Sem fílar ekki
áburðinn
Nú lífrænn er frá
topp´og oní tær
> >
Í framhaldsskóla
stráksi gekk
Síðan leið á kokknum
fékk
Á smíðabraut þar
vildi nema smið
Þar smíðaverkin litu
ljós
Nú gæti Bjössi byggt
sér fjós
Og heima haldið
húsunum þar við
En svo var sveinsins
vandamál
Prófið þreytt af
líf´og sál
Sem þarf að ná með
tíu hér um bil
Hann átt´að smíða
sexhyrning
En smíðin líktist
nashyrning
Og enn og aftur
breyta þurfti til
> >
Hann fór á Hvanneyri
Frá Eyjafirði keyrði
hann að leyt´á önnur mið
Hann lærð´á Hvanneyri
Að moka skít og lyfta
glas´af heldri manna sið
Á barnum bjórinn
þambaði
Á barmi gjaldþrots
rambaði
Að lokum þá það
reddaðist þó allt
Úr skólanum hann gekk
svo burt
Með skírteinið svo
lofi smurt
Nú skildi heim því
búið reyndist falt.
> >
Nú kúnum fór að
fjölga títt
Og fjósið það varð
eins og nýtt
Og túnum snúið nótt
sem nýtan dag
Hann stundum býr til
girðingu
Sem kýrnar sýn´ei
virðingu
Og brjótast út, þær
kunna á því lag
Hann eltir þær með
svaka hvell
Í Grund og suðr´í
Ytra-Fell
Og bændur þar þeir
skilja ekkert í
Að traktorinn fær
aldrei breik
Og reglulega fer í
steik
Og kýrnar fá sitt
vikulega frí
> >
> >
Hann eltir beljurnar
Og traktorinn á
útopnu á túnum þeysist um
Hann sýpur kveljurnar
Er reikningarnir
hrúgast inn frá vélaverkstæðum
Fóðrið kostar þett´og
hitt
Bjössi hrópar fokk og
shit
Nú herðist á og taka
þarf nú til
Ég skal nú sparka
áburði
Og gera grín af
kjarnfóðri
Því lífrænn bóndi ég
nú verða vil
> >
Er þá Bjössi þrítugur
Þó varla sýnist
tvítugur
En gráu hárin sýna sig nú hratt
Því Bjössi hefur sýnt
sinn mátt
Og allavega fengið
drátt
Þrisvar sinnum, segji
það nú satt
Því börnin þrjú þau
eru góð
Og undan Bjössa kát
og rjóð
Á Finnastöðum er nú
jafnan fjör
Og orka Bjössa fer ég
held
Að dvína þegar
nálgast kveld
Því börn þau verð´af
biomjólk svo ör
> >
Hann lífrænn bóndi er
Býr með
eggjabúskapinn og frjálsar landnámskýr
Sínar eigin leiðir
fer
Og óljóst hvaða
hugmynd næst í koll´á honum býr
Með Indu selur
lífrænt sull
Allt annað er bölvað
bull
Af glundrinu hann
verður eins og nýr
Og enginn veit hvað
verður næst
Við bíðum bara spennt
og æst
Já Bjöss´er enginn
venjulegur fýr.